top of page

um mig

heida-portrett.jpg

Ég er 22 ára, fædd og uppalin í Reykjavík.

Ég útskrifaðist árið 2018 sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og fór þaðan beinustu leið í Tækniskólann til þess að læra ljósmyndun. Í sameiginlega grunninum vakti grafísk miðlun áhuga minn en umbrot hefur alltaf heillað mig. Mér finnst gaman að vinna með liti, form og texta, sem er í raun allstaðar í kringum okkur. Ég er einnig með mjög sterkar skoðanir á litum og litasamsetningum ásamt týpógrafíu. Ég ákvað þó að klára ljósmyndun fyrst og útskrifaðist síðasta vor. Mér finnst skemmtilegast að mynda fólk, sérstaklega portrett og tískuljósmyndir en listræn ljósmyndun er eitthvað sem mig langar til að stúdera meira.

 

Annars kallar mamma mig stundum íþróttaálf. Ég æfi crossfit, stunda fjallgöngur og elska alla útivist. Mér finnst einnig gaman að skrifa og þá sérstaklega ljóð. Hönnun og tíska hafa þó líka alltaf átt samastað í hjarta mínu. Fatastíllinn minn er blanda af töffara og skvísu en ég er mikill aðdáandi second hand búða. Ferðalög eru líka í uppáhaldi en ég er spenntust fyrir hálendinu þessa dagana. Í grunninn hef ég mjög vítt áhugasvið og langar til þess að læra meira og starfa á fjölbreyttu skapandi sviði í framtíðinni.

  • Instagram
bottom of page