
Heiða Norðkvist
Ráðstefnuverkefni
vera – fyrir geðheilsu barna
Ég bjó til ímynduð samtök sem ég nefndi Vera og huga að geðheilsu barna.
Fyrir ráðstefnuna átti að hanna eftirfarandi hluti:
Lógó fyrir samtök // Dagblaðsauglýsing // Skjáauglýsing // Dreifibréf // Dagskrá // Mappa Barmmerki // Matseðill // Askja // App (prótótýpa)
// Aukahlutir (límmiðar og bolur)
Ráðstefnan fjallar um geðheilsu barna. Í dag er mikið hugsað um geðrækt og fullorðið fólk hvatt til þess að huga vel að heilsunni (sérstaklega á tímum covid), bæði andlega og líkamlega. Börnin okkar hins vegar fá mis mikla hvatningu og vitneskju um mikilvægi þess að hugsa vel um sjálft sig. Með því að rækta geðheilsu barnanna okkar erum við að gefa þeim gott veganesti og búa þau betur undir framtíðina og þá erfiðleika sem munu koma til með að blasa við þeim. Sérstaklega þar sem virkilega margir glíma við t.d. kvíða og þunglyndi í samfélaginu okkar í dag.
Vera vill gera geðrækt hluta af aðalnámskrá grunnskóla. Jafnframt ættu sálfræðingar að vera til staðar í öllum skólum. Þá myndu öll börn hafa jafnt aðgengi að slíkri þjónustu alveg óháð fjárhag foreldra.
Stuðningsaðilar ráðstefnunnar eru Geðhjálp, Barnaheill og BUGL (Barna og unglinga geðdeild Landspítalans).
Hér er kynningin mín um ráðstefnuna:














