top of page

About Me

Heida-Portrett copy.jpg

Ég er 21 árs, fædd og uppalin í Reykjavík. Áhuginn fyrir ljósmyndun var lengi til staðar en hófst fyrir alvöru þegar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð þaðan sem ég útskrifaðist vorið 2018. 


Mér finnst skemmtilegast að mynda fólk, bæði portrett og tískumyndir. Fólk er svo mismunandi og að fá aðra til þess að líða vel fyrir framan myndavélina finnst mér svo mikilvægt. Fatastíll fólks er líka eitthvað sem ég pæli mikið í og finnst mjög áhugavert.


Einnig heillast ég mikið af formum, línum og skuggum sem er í raun allt í kringum okkur. Í grunninn hef ég mjög vítt áhugasvið og langar til þess að læra meira og starfa á fjölbreyttu skapandi sviði í framtíðinni.

Contact Me

Thanks for submitting!

  • Instagram

© 2020 by  Heiða Norðkvist

bottom of page